- Auglýsing -
- Danska handknattleikskonan Maria Fisker Stokholm hefur gengið til liðs við Eiðis Bóltafelag í Færeyjum. Stokholm verður leikmaður liðsins og einnig þjálfari. Hún er þrautreynd handknattleikskona og hefur m.a. leikið með danska landsliðinu auk Viborg HK, Randers HK og CSM Búkarest.
- Eiðis Bóltafelag hefur á að skipa ungu og efnilegu liði sem Kristinn Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari HK og ÍBV, hefur byggt upp. Kristinn verður áfram yfirþjálfari hjá félaginu. Hann hefur verið hjá Eiðis Bóltafelag í fimm ár og samhliða þjálfað yngri landslið Færeyinga.
- Silje Solberg fór á kostum í fyrsta leik sínum með danska úrvalsdeildarliðinu Esbjerg í gærkvöld. Hún varði 20 skot, 45,5% hlutfallsmarkvarsla, er Esbjerg lagði Ikast á útivelli, 29: 26, í undanúrslitaviðureign liðanna og komst áfram í úrslit um danska meistaratitilinn. Odense verður andstæðingur Esbjerg í úrslitum. Odense vann Nykøbing í tveimur viðureignum.
- Solberg hafði ekki tekið þátt í handboltaleik í nærri 16 mánuði þegar hún mætti til leiks í gær. Eftir að norska liðið Vipers varð gjaldþrota í upphafi síðasta árs varð Solberg samningslaus. Í haust eignaðist Solberg barn en var fljót að fara af stað aftur við æfingar. Hún samdi við Esbjerg í vetur og ætlaði að hefja leik með liðinu í upphafi næsta tímabils. Hún var hins vegar skráð inn í leikmannahóp Esbjerg í febrúar áður en lokað var fyrir félagaskipti í Danmörku. Af þeim sökum varð mögulegt að kalla inn í Esbjerg-liðið þegar báðir markverðir liðsins meiddust með skömmu millibili á dögunum.
Sjá einnig: Þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst – Solberg er mætt í markið
- Danski landsliðsmarkvörðurinn Jannick Green hefur ákveðið að standa við samkomulag sem hann gerði við danska liðið HØJ í vetur um að verða markvörður liðsins á næstu leiktíð. Green hefur undanfarin ár verið einn markvarða PSG. Tvær grímur runnu á Green þegar HØJ féll úr úrvalsdeildinni á dögunum. Eftir nokkra umhugsun ákvað Green að standa við samkomulagið en hann mun hafa átt þess kost að ganga út úr því við fall liðsins.
- Auglýsing -



