Halldór Kristinn Harðarson, leikmaður Þórs á Akureyri, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 33 ára að aldri, og tekur um leið við starfi styrktarþjálfara meistaraflokks og yngri flokka hjá félaginu. Lék Halldór Kristinn í alls þrjú ár með meistaraflokki Þórs, þar sem hann ólst upp.
Halldór Kristinn lék sem vinstri hornamaður og tók skóna fram fyrir nokkrum árum eftir langt hlé. Átti hann meðal annars þátt í að koma Þór upp í Olísdeildina vorið 2025 og halda liðinu á meðal þeirra bestu í ár.
Halldór Kristinn er einnig tónlistarmaður þar sem hann gengur undir nafninu KÁ-AKÁ og hefur meðal annars gefið út lög á borð við Réttu megin við ána og Hamarinn þar sem textarnir hverfast mikið til um ást hans í garð Þórs.
„Hann hefur unnið ótrúlega vinnu fyrir klúbbinn bæði innan og utan vallar. Halldór fer nú í nýtt hlutverk og kemur inn í þjálfarateymi meistaraflokks sem styrktarþjálfari.
Hann mun einnig sjá um styrktarþjálfun fyrir yngri flokka félagsins. Það eru miklar gleðifréttir að við höldum Dóra áfram þrátt fyrir að hann sé hættur að spila,“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Þórs.


