https://www.youtube.com/watch?v=Y333y9jNyqw
„Þegar maður vinnur stórt í fyrsta leik í úrslitakeppni þá verður næsti leikur oft erfiðari. En þetta tókst hjá okkur," sagði Stefán Arnarson annar þjálfara kvennaliðs Hauka eftir að liðið vann Stjörnuna, 25:21, í annarri umferð úrslitakeppni Olísdeildar kvenna...
Haukar er komnir í undanúrslit Olísdeildar kvenna í handknattleik eftir að hafa lagt Stjörnuna öðru sinni í Hekluhöllinni í Garðabæ í kvöld, 25:21, eftir að hafa verið marki yfir í hálfleik, 11:10. Haukar mæta Fram í undanúrslitarimmu sem hefst...
RK Partizan, sem tapaði fyrir FH í Evrópubikarkeppninni í byrjun vetrar, varð um helgina serbneskur bikarmeistari í handknattleik karla eftir maraþonleik við RK Vojvodina. Bráðabana í vítakeppni þurfti til þess að knýja fram úrslit í leiknum. Þetta er í...
Kári Kristján Kristjánsson og Rúnar Kárason mættu í settið og spáðu í spilin fyrir úrslitakeppni Olís deildarinnar ásamt því að segja okkur frá huggulegustu mönnum deildarinnar! Ásamt því að ræða strákana okkar í landsliðinu. Hver staðan væri á ensku...
Slóvenska kvennalandsliðið í handknattleik braut blað í sögu sinni í gær þegar það tryggði sér í fyrsta sinn í sögunni farseðil á Ólympíuleika. Slóvenska landsliðið vann Svartfellinga, 30:26, í 3. og síðustu umferð forkeppnisriðils sem leikinn var í Neu-Ulm...
Oddaleikur í undanúrslitum umspils Olísdeildar karla í handknattleik verður háður á Ísafirði í kvöld þegar Hörður og Þór eigast við. Hörður vann heimaleikinn á síðasta þriðjudag, 28:25. Þórsarar svöruðu fyrir sig með fimm marka sigri í Höllinni á Akureyri...
Íslenskir handknattleiksmenn fóru vel af stað í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Lið þeirra unnu öll í fyrstu umferð og horfa þeir því bjartsýnir fram á veginn þegar önnur umferð átta liða úrslita fer fram á miðvikudaginn.
Sigurmark...
Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, verður í hörkuriðli á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Kína frá 14. til 25. ágúst. Dregið var í riðla í laugardaginn í framhaldi af drætti í riðla HM...
Ekkert lát er á sigurgöngu Orra Freys Þorkelssonar og félaga í Sporting Lissabon. Í gær vann Sporting öruggan sigur á ABC Braga, 33:23, í Braga í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en í henni reyna með sér fjögur efstu lið efstu...
Handknattleiksmaðurinn Stefán Rafn Sigurmannsson hefur ákveðið að láta gott heita á handknattleiksvellinum. Hann staðfesti ákvörðun sína í samtali við Vísir í kvöld eftir að Haukar féllu úr leik í úrslitakeppninni með öðru tapi fyrir ÍBV á Ásvöllum, 37:31.
Stefán Rafn...
Afturelding og Grótta leika til úrslita í umspili Olísdeildar kvenna í handknattleik. Afturelding lagði FH í annað sinn í undanúrslitum í dag, 35:28, í Kaplakrika. Á sama tíma marði Gróttu sigur á Víkingi í Safamýri, 28:27. Afturelding og Grótta...
Forkeppni Ólympíuleikanna hófst fimmtudaginn 11. apríl og lauk í dag, sunnudaginn 14. apríl. Tólf landslið reyndu með sér í keppni í Ungverjalandi, á Spáni og í Þýskalandi. Sex farseðlar voru í boði á Ólympíuleikana sem fram fara í París...
https://www.youtube.com/watch?v=WgLdUNigm28
„Ég er hrikalega ánægður með sigurinn og strákana og nálgun þeirra á leikinn,“ sagði Magnús Stefánsson þjálfari ÍBV í samtali við handbolta.is á Ásvöllum í kvöld eftir að ÍBV tryggði sér sæti í undanúrslitum Olísdeildar karla með öðrum sigri...
Ekki verður Hafnarfjarðarslagur í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik þetta árið. ÍBV sá til þess í dag með því að leggja Hauka öðru sinni í átta liða úrslitum, 37:31, á Ásvöllum og tryggja sér sæti í undanúrslitum hvar liðið...
Magdeburg rótburstaði MT Melsungen í úrslitum þýsku bikarkeppninnar í handknattleik karla í Lanxess Arena í Köln í dag, 30:19, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik, 13:11. Gísli Þorgeir Kristjánsson, Janus Daði Smárason og Ómar Ingi Magnússon...