- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Díana Dögg kvaddi með sigri og áframhaldandi veru í efstu deild

Díana Dögg Magnúsdóttir kveður BSV Sachsen Zwickau í efstu deild þýska handknattleiksins eftir að liðið vann öruggan sigur á HSG Bad Wildungen Vipers, 34:26, í síðustu umferð þýsku 1. deildarinnar í dag. BSV Sachsen Zwickau varð að vinna leikinn...

Myndskeið: Orri Freyr meistari í Portúgal

Landsliðsmaðurinn Orri Freyr Þorkelsson varð í kvöld portúgalskur meistari í handknattleik karla með liði sínu Sporting Lissabon. Sporting vann Porto, 35:33, í síðasta leik úrslitakeppninnar um meistaratitilinn í Lissabon. Orri Freyr er fyrsti íslenski handknattleikskarlinn sem verður landsmeistari í...

Berlínarliðið leikur til úrslita annað árið í röð

Füchse Berlin getur unnið Evrópudeildina í handknattleik karla annað árið í röð á morgun. Alltént fær liðið tækifæri til þess þegar það mætir Flensburg í úrslitaleik í Barclays Arena í Hamborg. Füchse Berlin vann afar öruggan sigur á Rhein-Neckar...
- Auglýsing -

Valur er Evrópubikarmeistari!

Valur skrifaði nýjan kafla í íslenska íþróttasögu með því að verða fyrst íslenskra félagsliða til að vinna Evrópukeppni félagsliða. Valur vann Evrópubikarinn í handknattleik karla eftir að hafa lagt Olympiacos samanlagt, 62:61, í tveimur úrslitaleikjum eftir dramatík í síðar...

Teitur Örn leikur til úrslita í Evrópudeildinni á morgun

Teitur Örn Einarsson og liðsfélagar hans í þýska handknattleiksliðinu Flensburg-Handewitt leika til úrslita í Evrópudeildinni á morgun gegn annað hvort Rhein-Neckar Löwen eða Füchse Berlin. Flensburg lagði rúmenska meistaraliðið Dinamo Búkarest, 38:32, í undanúrslitum Barclays Arena í Hamborg í...

Fyrst og fremst eftirvænting hjá okkur

„Meðal okkar ríkir fyrst og síðast eftirvænting yfir að hefja leikinn,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari karlaliðs Vals í handknattleik þegar handbolti.is sló á þráðinn til hans í Grikklandi í gær. Framundan er síðari úrslitaleikur Vals og gríska liðsins...
- Auglýsing -

Bjarki Már og félagar standa vel að vígi

Bjarki Már Elísson og samherjar í ungverska meistaraliðinu Telekom Veszprém færðust í gærkvöld skrefi nær ungverska meistaratitlinum þegar þeir unnu öruggan sigur á höfuð andstæðingnum OTP Bank-Pick Szeged, 35:28, á heimavelli. Staðan í hálfleik var 19:13. Veszprém náði mest...

Molakaffi: Sveinn, Tryggvi, Hannes, Grétar

Sveinn Jóhannsson skoraði tvö mörk og átti tvær stoðsendingar einnig í þriggja marka sigri GWD Minden á Bayer Dormagen, 32:29, í 2. deild þýska handknattleiksins í gær. Leikurinn var í næst síðustu umferð deildarinnar. Minden-liðinu hefur vegnað afar vel...

Íslandsvinir eru Evrópubikarmeistarar

Spænska handknattleiksliðið CBM Elche, sem mætti KA/Þór og síðar Val í Evrópubikarkeppnini í handknattleik fyrir fáeinum árum, varð í kvöld Evrópubikarmeistari í handknattleik kvenna.CBM Elche vann slóvakíumeistara MSK IUVENTA Michalovce, 28:22, í síðari viðureign liðanna í kvöld í Michalovce...
- Auglýsing -

Vipers vann sjöunda árið í röð – kveðjuleikur Axels

Fráfarandi Evrópumeistarar kvenna í handknattleik, Vipers Kristiansand, unnu úrslitakeppnina í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik kvenna í kvöld með öðrum öruggum sigri á Storhamar í úrslitarimmu, 32:27, þegar leikið var í Hamar. Þetta var 101. sigur Vipers í röð í...

Felix Már klæðist búningi HK á nýjan leik

Felix Már Kjartansson hefur snúið í heimahagana á handknattleikssviðinu og samið við HK. Felix Már, sem er 21 árs gamall, hefur síðustu tvö ár verið í herbúðum Fram og lék með ungmennaliðinu í Grill 66-deildinni og kom einnig við...

Vilius Rašimas ætlar að verja mark Hauka

Handknattleiksmarkvörðurinn sterki frá Litáen, Vilius Rašimas hefur gert samning við handknattleiksdeild Hauka um að hann spili með meistaraflokki félagsins næstu tvö keppnistímabil. Vilius sem er 34 ára hefur varið mark Selfoss í Olísdeildinni undanfarin fjögur tímabil og verið einn öflugasti...
- Auglýsing -

Myndskeið – glæsileg keppnishöll Olympiacos – 5.000 miðar þegar seldir

Seldir hafa um 5.000 aðgöngumiðar á síðari úrslitaleik Olympiacos og Vals í Evrópubikarkeppninni í handknattleik karla sem fram fer í Aþenu síðdegis á morgun. Flautað verður til leiks klukkan 17 og verður mögulegt að fylgjast með leiknum í útsendingu...

Ísland verður í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla HM

Íslenska landsliðið í handknattleik karla verður í öðrum styrkleikaflokki af fjórum þegar dregið verður í riðla lokakeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik karla sem fram fer í janúar í Króatíu, Danmörku og Noregi. Dregið verður í riðla í Zagreb í Króatíu...

Valsmenn æfa í Chalkida í dag – fara til Aþenu í kvöld

Leikmenn handknattleiksliðs Vals og fjölmennur hópur stuðningsmanna liðsins komu heilu og höldnu til Chalkida í Grikklandi í gærkvöld. Chalkida er í 80 km austur af Aþenu. Á morgun mætir Valur liði Olympiacos í síðari viðureigninni í úrslitum Evrópubikarkeppninnar í...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -