- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

„Fór aðeins of geyst af stað eftir hvíldina í sumar“

Landsliðskonan Díana Dögg Magnúsdóttir hefur ekki náð sér eftir að hafa farið úr axlarlið í síðasta leik þýska liðsins BSV Sachsen Zwickau í lok maí. Hún hefur af þeim sökum ekkert leikið með liðinu í undirbúningsleikjum síðustu vikurnar. Díana...

Þurftum að skera niður og horfa meira inn á við

„Það hafa orðið talsverðar breytingar hjá okkur frá síðasta keppnistímabili,“ sagði Patrekur Jóhannesson þjálfari karlaliðs Stjörnunnar þegar handbolti.is hitti hann að máli eftir viðureign Stjörnunnar og Aftureldingar á UMSK-mótinu á síðasta laugardag. „Staðan er sú að leikmannahópurinn er að 60...

Handkastið: „Það er algjör veisla framundan, þetta eru jólin“

„Þetta eru stærstu tíðindi í handboltasögunni hér heima, það þessir tveir menn komi heim og ætli sér að spila í Olísdeild karla,“ segir Guðjón Guðmundsson, Gaupi, fyrrverandi fréttmaður á Stöð2 í hlaðvarpsþættinum Handkastið um þá staðreynd að Aron Pálmarsson...
- Auglýsing -

Molakaffi: Valur, Hannes, Arnór, Halldór, Ágúst, Elvar, Guðmundur

Íslandsmeistara Vals í handknattleik kvenna töpuðu tveimur leikjum á móti á Spáni í gær og í fyrradag. Í gær tapað Valur fyrir BM Elche, 25:18, og 27:22 í leik við Málaga á laugardag. Eins og áður hefur komið fram...

Elvar Örn og Elliði Snær minntu strax á sig – myndskeið

Það skiptust á skin og skúrir hjá íslenskum handknattleiksmönnum í Þýskalandi í dag í leikjum þeirra með liðum sínum í fyrstu umferð deildarinnar. Elvar Örn Jónsson fór á kostum með MT Melsungen í 10 marka sigri á heimavelli á...

Tap í Horsens – Andrea og samherjar eru úr leik

Andrea Jacobsen átti fína leik með nýjum samherjum sínum í danska úrvalsdeildarliðinu Silkeborg-Voel í dag gegn öðru úrvalsliði, Horsens, í 16-liða úrslitum dönsku bikarkeppninnar. Frammistaða Andreu dugði þó ekki ein og sér til sigurs þrátt fyrir gott útlit að...
- Auglýsing -

Lið Íslendinga standa vel að vígi eftir fyrri leikina

Þýsku liðin Hannover-Burgdorf og Rhein-Neckar Löwen, sem hafa Íslendinga innanborðs, standa vel að vígi eftir fyrri leiki sína í undankeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik karla sem fram fóru í gær. Síðari viðureignirnar fara fram eftir viku en alls taka 10...

Molakaffi: Tumi, Sandra Sveinbjörn, Ásgeir, óvænt, gallað lakk

Tumi Steinn Rúnarsson og samherjar í Coburg komust áfram í þýsku bikarkeppninni í gær með 14 marka sigri á Gelnhausen, 40:26, á útivelli. Tumi Steinn skoraði tvö mörk fyrir Coburg.  Sveinbjörn Pétursson, markvörður, og hans félagar í EHV Aue féllu...

Halldór Jóhann byrjar af krafti hjá Nordsjælland

Halldór Jóhann Sigfússon og lærisveinar hans í Nordsjælland hófu keppnistímabilið í Danmörku af krafti í dag þegar þeir tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum bikarkeppninnar með sigri á KIF Kolding, 24:23, á heimavelli. Sigurinn er nokkuð óvæntur þar...
- Auglýsing -

Gróttumenn sterkastir á Ragnarsmótinu – viðurkenningar og úrslit

Grótta stóð uppi sem sigurvegari á Ragnarsmóti karla í handknattleik þegar mótinu lauk í Sethöllinni á Selfossi síðdegis. Gróttumenn lögðu KA-menn örugglega í úrslitaleik, 33:26. Aðeins munaði einu marki á liðunum í hálfleik, 16:15, Seltirningum í hag. Þeir tóku...

Dagur tryggði Arendal annað stigið á útivelli gegn stórliðinu

Dagur Gautason og nýir samherjar hans í ØIF Arendal gerðu sér lítið fyrir og kræktu í annað stigið í heimsókn sinni til stórliðsins og ríkjandi Noregsmeistara Kolstad í Þrándheimi í upphafsleik norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla í dag, 33:33,...

Haukar gáfu FH-ingum ekki þumlung eftir – myndir

Vængbrotið Hauka lið gaf höfuðandstæðingum sínum í FH ekkert eftir í síðasta leik Hafnarfjarðarmótsins í handknattleik karla í Kaplakrika í dag. Niðurstaðan af viðureigninni var sú að liðin skildu með skiptan hlut, 26:26, eftir jafna stöðu í hálfleik, 13:13. FH...
- Auglýsing -

Afurelding hrósaði sigri á UMSK-mótinu

Afturelding hrósaði í dag sigri á UMSK-mótinu í handknattleik karla, einu af æfingamótum sem fram fara þessa dagana til undirbúnings fyrir átökin sem framundan eru í haust, vetur og vor. Afturelding vann allar þrjá viðureignir sína í mótinu, þá...

FH-ingar geta fengið upplýsingar hjá Haukum

FH mætir gríska liðinu AC Diomidis Argous í fyrstu umferð í Evrópubikarkeppninni í handknattleik og hafa FH-ingar ákveðið að leika báða leikina í Grikklandi, 16. og 17. september.  FH-ingar geta fengið upplýsingar um ferðir, allar aðstæður og andrúmsloft hjá Haukum,...

Dagskráin: Fimm leikir framundan – úrslit ráðast

Segja má að undirbúningstímabilið í handknattleik karla nái hámarki í dag þegar á dagskrá eru fimm leikir. Ragnarsmótið á Selfossi verður leitt til lykta eftir að hafa staðið yfir síðan á mánudagskvöld. Úrslitaleikur UMSK-mótsins fer fram í Garðabæ og...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -