- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -

Arnór Þór og Pütz taka við þjálfun Bergischer HC

Arnór Þór Gunnarsson og Markus Pütz munu stýra þýska 1. deildarliðinu Bergischer HC út keppnistímabilið eftir að Jamal Naji þjálfara og hans helsta aðstoðarmanni Peer Pütz var vikið frá störfum í dag. Bergischer HC hefur verið í frjálsu falli...

Molakaffi: Bjarki, Telma, Cupic, Bombac, Kirkely

Bjarki Már Elísson skoraði sjö mörk og var markahæstur hjá Telekom Veszprém í 13 marka sigri á Balatonfüredi KSE, 33:20, á heimavelli í 23. umferð af 26 í ungversku 1. deildinni í handknattleik í gær. Telekom Veszprém virðist eiga...

Íslendingar fögnuðu sigri í fyrstu umferð í Noregi

Íslenskir handknattleiksmenn fóru vel af stað í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Lið þeirra unnu öll í fyrstu umferð og horfa þeir því bjartsýnir fram á veginn þegar önnur umferð átta liða úrslita fer fram á miðvikudaginn. Sigurmark...
- Auglýsing -

Molakaffi: Orri, Óðinn, Arnór, Elvar, Ágúst, Bjarki

Ekkert lát er á sigurgöngu Orra Freys Þorkelssonar og félaga í Sporting Lissabon. Í gær vann Sporting öruggan sigur á ABC Braga, 33:23, í Braga í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en í henni reyna með sér fjögur efstu lið efstu...

Gísli, Janus og Ómar þýskir bikarmeistarar í fyrsta sinn

Magdeburg rótburstaði MT Melsungen í úrslitum þýsku bikarkeppninnar í handknattleik karla í Lanxess Arena í Köln í dag, 30:19, eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik, 13:11. Gísli Þorgeir Kristjánsson, Janus Daði Smárason og Ómar Ingi Magnússon...

Teitur Örn fer heim frá Köln með bronsverðlaun

Teitur Örn Einarsson og félagar í Flensburg-Handewitt hreppti bronsverðlaun í þýsku bikarkeppninni í handknattleik karla í dag. Flensburg vann Füchse Berlin með þriggja marka mun í viðureign liðanna í Lanxess-Arena í Köln, 31:28. Berlínarliðið var fjórum mörkum yfir að...
- Auglýsing -

Myndskeið: Löglegt mark Andra Más fékk ekki að standa

Mark sem Andri Már Rúnarsson leikmaður Leipzig skoraði beint úr aukakasti í lok fyrri hálfleiks í viðureign Leipzig og Hannover-Burgdorf á föstudagskvöld var ekki dæmt gott og gilt. Dómarar leiksins sátu við sinn keip þrátt fyrir að geta skoðað...

Molakaffi: Haukur, Halldór, Stiven, Sigurður

Haukur Þrastarson og samherjar í Industria Kielce komust í undanúrslit í úrslitakeppni pólsku úrvalsdeildarinnar í gær þegar þeir lögðu MMTS Kwidzyn, 40:25, á heimavelli í annarri viðureign liðanna í átta liða úrslitum. Haukur skoraði tvö mörk í leiknum.  Lærisveinar Halldórs...

Fimm Íslendingar berjast um sigurinn í bikarnum í Þýskalandi

Fimm íslenskir landsliðsmenn verða í eldlínunni á morgun þegar SC Magdeburg og Melsungen mætast í úrslitum þýsku bikarkeppninnar í handknattleik í karla í Lanxess Arena í Köln. Tríóið hjá Magdeburg, Gísli Þorgeir Kristjánsson, Janus Daði Smárason verða þar auk...
- Auglýsing -

Hákon og félagar lögðu toppliðið

Hákon Daði Styrmisson og félagar hans í Eintracht Hagen gerðu sér lítið fyrir og unnu efsta lið 2. deildar þýska handknattleiksins, Potsdam, 37:33, á heimavelli í gær. Potsdam-liðið hefur farið mikinn í deildinni í vetur og hafði aðeins tapað...

Molakaffi: Guðmundur, Ólafur, miðaverð, Hannes, Viktor, Donni, Darri, Grétar

Fredericia HK, sem Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfar, vann í gær nauðsynlegan sigur til að halda í vonina um sæti í undanúrslitum úrslitakeppninnar um danska meistaratitilinn. Fredericia HK vann GOG á útivelli, 29:27, eftir að hafa verið undir, 13:10, að...

Tæpara gat tapið ekki verið

Rúnar Sigtryggsson og lærisveinar hans í SC DHfK Leipzig töpuðu afar naumt á heimavelli í kvöld fyrir Hannover-Burgdorf, 27:26, í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Grátlega naumara gat tapið ekki verið því Uladzislau Kulesh skoraði sigurmark Hannover-Burgdorf á síðustu...
- Auglýsing -

Molakaffi: Óðinn, Tryggvi, Rød, Westerholm

Óðinn Þór Ríkharðsson og samherjar í Kadetten Schaffausen komust í undanúrslit svissnesku A-deildarinnar í handknattleik karla í gærkvöld þegar þeir unnu Wacker Thun í þriðja sinn í fjórum viðureignum í átta liða úrslitum, 30:26. Óðinn Þór skoraði þrjú mörk,...

Sigvaldi og félagar töpuðu aðeins þremur stigum

Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur mörk þegar Kolstad vann Haslum, 40:33, þegar 26. og síðasta umferð norsku úrvalsdeildarinnar fór fram í gær. Leikurinn fór fram í Nadderud Arena heimavelli Haslum. Kolstad hafði fyrir nokkru síðan unnið deildina. Þegar upp...

Molakaffi: Orri, Haukur, Ólafur, Dagur, Þorgils, Döhler, Elvar, Ágúst, Halldór, Arnór

Orri Freyr Þorkelsson og liðsmenn Sporting frá Lissabon tryggðu sér sæti í undanúrslitum portúgölsku bikarkeppninnar í gær. Sporting vann Madeira SAD, 36:31, á Madeira. Leikurinn átti að fara fram á síðasta laugardag en var frestað vegna þess að vegna...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -