Kristján Örn Kristjánsson, Donni, fór hamförum í kvöld og skoraði 10 mörk í öruggum sex marka sigri PAUC í heimsókn til Créteil, 29:23, í frönsku 1. deildinni í handknattleik. Þar með færðist PAUC upp í annað sæti deildarinnar. Liðið...
Gummersbach, liðið sem Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar og Eyjamennirnir Elliði Snær Viðarsson og Hákon Daði Styrmisson leika með, náði í kvöld þriggja stiga forskoti í þýsku 2. deildinni í handknatteik þegar liðið vann Hüttenberg, 40:34, á heimavelli. Á sama...
Bikarmeistarar Lemgo, með Bjarka Má Elísson landsliðsmann innanborðs, drógust gegn Füchse Berlín í 16-liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í hádeginu þegar dregið var.
Berlínarliðið, sem Bjarki Már lék með áður en hann gekk til liðs við Lemgo sumarið 2019, hefur...
„Við fórum aðeins fram úr okkur svo ég tek því rólega í einhvern tíma og held áfram að styrkja öxlina," sagði Janus Daði Smárason, landsliðsmaður í handknattleik við handbolta.is. Í gær var greint frá því að Janus Daði leiki...
Alexander Petersson skoraði fjögur mörk og átti eina stoðsendingu þegar Melsungen vann Bergischer HC í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær, 26:24, á heimavelli. Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson skoruðu ekki mark en þeim var hvorum...
Teitur Örn Einarsson var markahæstur í fyrsta leik sínum með þýska liðinu Flensburg í kvöld en hann gekk til liðs við félagið í byrjun vikunnar. Hann skoraði fimm mörk í sex skotum gegn Veszprém í kvöld i 28:23 tapi...
Landsliðsmaðurinn í handknattleik, Janus Daði Smárason, verður frá keppni um ótiltekinn tíma eftir því sem félag hans, Göppingen, greinir frá. Janus Daði er meiddur á hægri öxlinni, þeirri sömu og hann gekkst undir aðgerð á í lok janúar á...
Ólafur Andrés Guðmundsson og samherjar í Montpellier færðust upp í annað sæti A-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknattleik er þeir unnu Meshkov Brest örugglega á heimavelli, 32:26, í gærkvöld. Montpellier hefur sjö stig eftir fimm leiki og er aðeins stigi...
Haukur Þrastarson varð fyrir því ólani að meiðast undir lok fyrri hálfleiks í viðureign Vive Kielce og Porto í Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Hann kom ekkert við sögu í leiknum eftir það.
Eftir því sem handbolti.is kemst næst þá tognaði...
Aron Pálmarsson fór á kostum í kvöld þegar Aalborg vann Vardar að viðstöddum 5.000 áhorfendum í Gigantium íþróttahöllinni í Álaborg, 33:29, í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. Aron skoraði átta mörk og átti fjórar stoðsendingar í leiknum. Hann var...
Bjarki Már Elísson skoraði sjö mörk fyrir TBV Lemgo í kvöld þegar liðið tapaði naumlega á heimavelli fyrir Benfica í 1. umferð B-riðils Evrópudeildarinnar í handknattleik, 30:29, á heimavelli. Lemgo var tveimur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 16:14.
Kristján...
Íslendingaliðið GOG og SC Magdeburg hófu keppni í Evrópudeildinni í handknattleik karla í kvöld og byrjuðu þau bæði með glæsibrag. Viktor Gísli Hallgrímsson og samherjar í GOG frá Fjóni unnu Medvedi í Moskvu með sjö marka mun í B-riðli,...
„Það er í rauninni ótrúlegt að ég standi í þessu sporum. Atburðarrásin hefur verið svo hröð síðustu daga að ég hef ekki náð að melta þetta allt saman ennþá,“ sagði Teitur Örn Einarsson nýr liðsmaður þýska stórliðsins Flensburg þegar...
Handknattleiksmaðurinn Teitur Örn Einarsson hefur gengið til liðs við þýska handknattleiksliðið Flensburg. Félagið greindi frá því í dag að það hafi samið við Selfyssinginn út yfirstandandi keppnistímabil, eða fram í júní.
Koma Teits Arnar hefur þegar verið tilkynnt til Handknattleikssambands...
Ómar Ingi Magnússon er í liði 7. umferðar í þýsku 1. deildinni í handknattleik eftir að hafa verið aðsópsmikill í öruggum sigri SC Magdeburg á Flensburg, 33:28, á heimavelli á sunnudaginn. Selfyssingurinn skoraði m.a. átta mörk í leiknum. Ómar...