- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fetar Sandra í fótspor Kristbjargar?

Sandra Erlingsdóttir landsliðskona í handknattleik verður í eldlínunni í dag þegar lið hennar TuS Metzingen leikur til undanúrslita í þýsku bikarkeppninni. TuS Metzingen mætir meisturum Bietigheim sem ekki hefur tapað leik í deildinni og þaðan af síður í bikarkeppninni...

Molakaffi: Halldór, Ásgeir, Tryggvi, Bjarni, Roland

Lærisveinar Halldórs Jóhanns Sigfússonar í TTH Holstebro töpuðu með minnsta mun, 30:29, í grannaslag við Mors-Thy  í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld. Holstebro er þar með fallið í níunda sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina. SønderjyskE skaust upp í áttunda sætið...

Myndskeið: Tvöföld varsla Viktors Gísla sú besta

Tvöföld markvarsla Viktors Gísla Hallgrímssonar markvarðar franska liðsins Nantes í síðari leik liðsins við Wisla Plock í fyrstu umferð Meistaradeildar karla í handknattleik á miðvikudagskvöldið var valin sú besta í umferðinni. Handknattleikssambands Evrópu hefur tekið saman fimm bestu tilþrif...
- Auglýsing -

Viggó ætlar að skjóta rótum í Leipzig

Tilkynnt var í kvöld við gríðarlegan fögnuð 4.000 áhorfenda í keppnishöllinni í Leipzig að íslenski landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson hafi skrifað undir nýjan samning við SC DHfK Leipzig sem gildir til 30. júní 2027. Viggó kom til félagsins á síðasta...

Bjarki Már og félagar í átta liða úrslit – Aalborg er úr leik

Ungverska liðið Veszprém með Bjarka Má Elísson innanborðs er komið í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. Danska liðið Aalborg Håndbold er á hinn bóginn úr leik eftir tap fyrir GOG á Fjóni í kvöld, 32:24, og samanlagt,...

Fóru stigalausar frá Leverkusen

Díana Dögg Magnúsdóttir og samherjar í BSV Sachsen Zwickau máttu bíta í það súra epli að fara án stiga úr heimsókn sinni til Leverkusen í kvöld þegar liðin mættust í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Eftir góðan leik framan...
- Auglýsing -

Fyrsti sigur ársins hjá Arnari Frey og Elvari Erni

MT Melsungen vann sinn fyrsta leik á árinu í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld eftir mikla þrautargöngu á síðustu vikum. Melsungen-liðið, með landsliðsmennina Arnar Frey Arnarsson og Elvar Örn Jónsson innanborðs, fór til Stuttgart og vann með...

Donni fékk niðrandi skilaboð frá leikmanni Vals

Ónefndur leikmaður Vals sendi handknattleiksmanninum Kristjáni Erni Kristjánssyni, Donna, niðrandi skilaboð nokkrum stundum fyrir viðureign Vals og franska liðsins PAUC í Evrópudeildinni í handknattleik sem fram fór í Origohöllinni í 21. febrúar sl. Frá þessu segir Donni í ýtarlegau...

Molakaffi: Fredericia, Daníel Freyr, Lijewski, Ribera, Vujović

Fredericia Håndboldklub tapaði á útivelli fyrir KIF Kolding, 35:31, í grannaslag í næst síðustu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í gær. Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði eitt mark fyrir Fredericia Håndboldklub og var einu sinni vísað af leikvelli. Guðmundur Þórður Guðmundsson er...
- Auglýsing -

Féllu úr leik eftir vítakeppni

Viktor Gísli Hallgrímsson og samherjar í franska liðinu Nantes féllu í kvöld úr leik í Meistaradeild Evrópu í handknattleik þegar þeir töpuðu á heimavelli fyrir pólska liðinu Wisla Plock, 30:29. Vítakeppni þurfti til þess að knýja fram úrslit. Leikmenn...

21 marks sigur á heimavelli

Sigvaldi Björn Guðjónsson var markahæstur hjá Kolstad í kvöld þegar liðið vann 21 marks sigur á Halden í Kolstad Arena í Þrándheimi, 42:21, í næst síðustu umferð í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Þrjú marka sinna skoraði Sigvaldi Björn úr...

Á brattann verður að sækja

Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði þrjú mörk og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir tvö þegar lið þeirra Skara HF tapaði með sex marka mun fyrir H 65 Höör, 27:21, í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í...
- Auglýsing -

Ekkert fararsnið er á Sveinbirni

Markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson hefur skrifað undir nýjan samning við þýska 3. deildarliðið EHV Aue. Samningurinn er til eins árs, út leiktíðina 2024. Hann leysir af núverandi samning sem rennur út í vor. Sveinbjörn hefur gengið í gegnum súrt og sætt...

Óðinn Þór með átta mörk að meðaltali – tvennir bræður í fremstu röð

Óðinn Þór Ríkharðsson, hornamaður svissneska meistaraliðsins Kadetten Schaffhausen, er fjórði markahæsti leikmaður Evrópudeildarinnar í handknattleik karla þegar aðeins átta lið eru eftir í keppninni, þar á meðal Kadetten Schaffhausen. Óðinn Þór hefur skorað 89 mörk í 11 leikjum en...

Teitur Örn og félagar lögðu Evrópumeistarana

Teitur Örn Einarsson og samherjar hans í Flensburg-Handewitt sáu til þess að Evrópumeistarar Benfica verja ekki tign sína í Evrópudeildinni í handknattleik karla. Flensburg vann Benfica með fimm marka mun, 33:28, í Flens-Arena í kvöld í síðari viðureign liðanna...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -