Okkar fólk úti

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fögnuðu fyrsta sigrinum í 20 ár

Glatt var á hjalla í Thansen ARENA í Fredericia í dag þegar Fredericia Håndboldklub vann Aalborg Håndbold í fyrsta sinn í 20 ár í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Lokatölur voru 29:28. Guðmundur Þórður Guðmundsson er þjálfari Fredericia Håndboldklub og...

Molakaffi: Daníel, Oddur, Örn, Grétar, Ungverjar tapa, Appelgren, Walther

Daníel Þór Ingason og Oddur Gretarsson skoruðu fjögur mörk hvor fyrir Balingen-Weilstetten í gærkvöld þegar liðið sótti HC Motor heim til Düsseldorf og vann með þriggja marka mun, 26:23. Daníel Þór átti einnig eina stoðsendingu. Balingen-Weilstetten er í efsta...

Magdeburg situr yfir í fyrstu umferð – Plock greip tækifærið

Gísli Þorgeir Kristjánsson og samherjar í þýska meistaraliðinu SC Magdeburg tryggðu sér í gærkvöld fjórða og síðasta sætið í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik þegar þeir unnu Dinamo Búkarest, 34:33, á heimavelli í síðustu umferð riðlakeppninnar. Anton...
- Auglýsing -

Molakaffi: Sigvaldi, Sóley, Elvar, Ágúst, Ýmir, Elliði, Hákon, Arnar, Elvar, Arnór, Sveinn, Møller

Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður og leikmaður Kolstad, er í úrvalsliði norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik sem valið var fyrir febrúar. Þetta er í annað sinn á leiktíðinni sem Sigvaldi Björn er úrvalsliði mánaðarins í deildinni. Hann var einnig með í...

Molakaffi: Anton, Jónas, Hafþór, Bjarni, Halldór, Witzke, Nenadic, Martinsen

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma viðureign Þýskalandsmeistara SC Magdeburg og rúmenska meistaraliðisins Dinamo Búkarest í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla sem fram fer í Magdeburg í kvöld. Þetta er sjötti leikurinn sem þeir félagar dæma...

Aron átti stjörnuleik í Celje

Aron Pálmarsson átti stjörnuleik með Aalborg Håndbold í kvöld þegar liðið vann Celje Lasko í Slóveníu í lokaumferð Meistaradeildar Evrópu í handknattleik, 34:31. Aron skoraði 10 mörk og gaf eina stoðsendingu. Hann var markahæstur hjá danska liðinu. Kristian Bjørnsen...
- Auglýsing -

Þjálfari Donna og félaga gert að taka pokann sinn

Thierry Anti þjálfari franska 1. deildarliðsins PAUC, sem Kristján Örn Kristjánsson, Donni, hefur leikið með frá haustinu 2020, stýrir liðinu í síðasta sinn á laugardaginn. Stjórn félagsins er sögð hafa ákveðið að leysa Anti frá störfum. Fréttavefurinn La Provence...

Gunnar og Gísli Felix í hópi þeirra bestu í sögu Ribe HK

Handknattleiksmennirnir Gunnar Gunnarsson og Gísli Felix Bjarnason gátu sér gott orð í danska handknattleiknum á níunda áratug síðustu aldar þegar þeir lék með Ribe HK undir stjórn Anders Dahl Nielsen eins þekktasta handknattleiksmanns Danmerkur. Gunnar lék með liðinu frá...

Molakaffi: Teitur, Kristján, Daníel, Larsen, Koksharov, Lindberg

Teitur Örn Einarsson var næst markahæstur hjá Flensburg í gærkvöld þegar liðið gerði jafntefli við ungverska liðið FTC, 27:27, í síðustu umferð Evrópudeildarinnar í handknattleik karla. Teitur Örn skoraði 27. mark Flensburg og kom liðinu tveimur mörkum yfir þegar...
- Auglýsing -

Hvert er framhaldið í Evrópudeildinni?

Eftir að riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik karla lauk í kvöld liggur ljóst fyrir hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum keppninnar 21. og 28. mars Í 16-liða úrslitum mætast:Bidasoa Irun – Sporting.FTC – Montpellier.Granolles – Skanderborg Aarhus.Benfica – Flensburg.Valur –...

Enn einu sinni héldu Óðni Þór engin bönd

Óðinn Þór Ríkharðsson fór enn og aftur á kostum með Kadetten Schaffhausen í kappleik í kvöld þegar liðið vann slóvakísku meistarana Tatran Presovn 38:30, í A-riðli Evrópudeildarinnar í handknattleik í Schaffhausen í Sviss. Óðni Þór héldu engin bönd. Hann...

Harkalegt bakslag hjá Darra

Handknattleiksmaðurinn Darri Aronsson varð fyrir harkalegu bakslagi á föstudaginn þegar hnéskeljarsinin slitnaði á æfingu með franska liðinu US Ivry. Darri sagði við handbolta.is í morgun að hann fari í aðgerð í Frakklandi í vikunni. Ljóst sé að hann mætir...
- Auglýsing -

Molakaffi: Oddur, Daníel, Örn, Sveinn, Roland, Viktor, Elvar, Arnar, Ágúst, Sunna, Harpa

Oddur Gretarsson skoraði níu mörk, þar af tvö úr vítaköstum, þegar Balingen-Weilstetten vann Grosswallstadt, 32:26, á útivelli í þýsku 2. deildinni í gær. Daníel Þór Ingason skoraði fjögur mörk og gaf tvær stoðsendingar fyrir Balingenliðið sem er eftir sem...

Rúnar og Viggó skelltu meisturunum

Þýska liðið SC DHfK Leipzig, sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar og Viggó Kristjánsson leikur með, gerði sér lítið fyrir og vann meistara SC Magdeburg í dag í þýsku 1. deildinni í handknattleik, 33:32. Leikið var í QUARTERBACK Immobilien ARENA í...

Janus og Sigvaldi norskir bikarmeistarar

Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson urðu í dag norskir bikarmeistarar í handknattleik þegar lið þeirra Kolstad vann Elverum í úrslitaleik í keppnishöllinni í Arendal, 34:27. Þetta er um leið í fyrsta sinn sem Kolstad vinnur bikarkeppnina. Elverum...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -