- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Cornelia bætir við tveimur árum á Selfossi

Cornelia Hermansson markvörður verður áfram á Selfossi. Mynd/Selfoss
- Auglýsing -

Cornelia Hermansson, markvörður, hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Umf. Selfoss til tveggja ára. Cornelia kom til Selfoss árið sumarið 2022 frá sænska liðinu Kärra HF en áður hafði hún einnig leikið með Önnereds HK.

„Handknattleiksdeildin er gríðarlega ánægð með að Cornelia skuli halda tryggð við félagið og verður spennandi að fylgjast með henni ásamt meistaraflokk kvenna í Olísdeildinni á komandi tímabili,“ segir í tilkynningu frá handknattleiksdeild Selfoss.

Selfoss-liðið vann Grill 66-deildina í vetur með fáheyrðum yfirburðum, vann alla 18 leiki sína. Einnig komst liðið í undanúrslit Poweradebikarkeppninnar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -