- Auglýsing -
Tveir síðustu leikir áttundu umferðar Olísdeildar karla fara fram í kvöld og verða það einu leikirnir sem háðir verða á Íslandsmótinu í dag eftir annasama helgi í öllum deildum auk yngri flokkamóta.
Sem fyrr fara leikirnir í kvöld fram fyrir luktum dyrum. Því miður var ekki heimilað að opna fyrir áhorfendur í þeim tilslökunum á sóttvörnum sem taka gildi í dag.
Leikir kvöldsins – Olísdeild karla:
TM-höllin: Stjarnan – ÍBV, kl. 18 – sýndur á Stöð2Sport.
Varmá: Afturelding – FH, kl. 19.30 – sýndur á Stöð2Sport.
Staðan í Olísdeild karla.