Leikmenn og þjálfarar liðanna í Olísdeild karla slá ekki slöku við enda þarf að halda vel á spöðunum til þess að hægt verði að ljúka keppni áður en hásumar gengur í garð. Átjánda umferð deildarinnar hefst í kvöld með þremur leikjum og síðan verður haldið áfram að leika annað kvöld.
Eyjamenn sækja Gróttumenn heim í kvöld og Þórsarar koma suður og mæta Fram og freista þess að setja strik í reikning annars Reykjavíkurliðs á skömmum tíma. Loks mæta fallnir ÍR-ingar í TM-höllina og leika gegn lærisveinum Patreks Jóhannessonar í Stjörnunni.
Dauft verður yfir útsendingum frá leikjum kvöldsins. Aðeins einn þeirra er skráður í útsendingu samkvæmt heimasíðu HSÍ, það er leikurinn í Framhúsinu.
Handbolti.is fylgist með leikjum kvöldsins af fremsta megni og gerir þeim skil í leikslok.
Olísdeild karla:
Hertzhöllin: Grótta – ÍBV, kl. 18 – sýndur á Gróttatv.
Framhús – Fram – Þór Ak., kl. 19.30 – sýndur á Framtv.
TM-höllin: Stjarnan – ÍR, kl. 19.30
Staðan í Olísdeild karla.