- Auglýsing -
Einn leikur er á dagskrá í Olísdeild karla í handknattleik í dag. FH-ingar sækja liðsmenn ÍBV heim til Vestmannaeyja. Flautað verður til leiks klukkan 13.30 og verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð2Sport.
Viðureign liðanna er hluti af fimmtu umferð Olísdeildarinnar sem fram á að fara síðla í þessum mánuði. Leiknum var flýtt vegna þátttöku FH-inga í Evrópubikarkeppninni en til stendur að þeir verði í Minsk í Hvíta-Rússlandi þá helgi sem fimmta umferð fer fram.
Olísdeild karla:
Vestmannaeyjar: ÍBV – FH, kl. 13.30 – sýndur á Stöð2Sport.
Staðan í Olísdeild karla er hér ásamt næstu leikjum.
- Auglýsing -