Blásið verður til leiks í Coca Cola-bikarkeppninni í handknattleik karla í kvöld, bikarkeppni HSÍ. Sannkallaður stórleikur verður á dagskrá þegar Akureyrarliðin Þór og KA leiða saman hesta sína í Íþróttahöllinni á Akureyri klukkan 19.30. Grannaslagurinn gerist vart stærri hér á landi en þegar Akureyrarliðin mætast, og það í bikarkeppninni. Eins og fyrri daginn verður leikið fyrir luktum dyrum en viðureignin verður send út á RÚV2 og hefst útsending klukkan 19.25.
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/02/THor-IBV_0717-955x1024.jpg)
Auk þess fer fram heil umferð í Grill 66-deild kvenna í kvöld.
Grill 66-deild kvenna:
Hertzhöllin: Grótta – Víkingur kl. 19.30 – sýndur á Gróttatv.
Origohöllin: Valur U – Selfoss
Varmá: Afturelding – Fjölnir-Fylkir kl. 19.30 – sýndur á Aftureldingtv.
Austurberg: ÍR – HK U kl. 20.15 – sýndur á ÍRtv.
Staðan í Grill 66-deild kvenna.
Coca Cola bikar karla, 32-liða úrslit:
Höllin, Akureyri: Þór Ak. – KA, kl. 19.30 – sýndur á RÚV.
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/02/THor-IBV_1011-673x1024.jpg)