- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dagskráin: Lambhagi og Selfoss

Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Önnur umferð undanúrslita Olísdeildar karla í handknattleik hefst í kvöld þegar Fram fær FH í heimsókn í Lambhagahöllinni klukkan 19.30. Fram vann fyrstu viðureign liðanna, 27:24, sem fram fór í Kaplakrika á miðvikudagskvöld. Fylgi Fram eftir sigrinum í kvöld kemst liðið í afar góða stöðu.


Leikurinn verður sendur út á Handboltapassanum auk þess sem hægt verður að fylgjast með stöðuuppfærslu á HBStatz.

Einnig heldur umspil Olísdeildar karla áfram í kvöld. Gróttumenn halda austur yfir fjall og mæta til leiks í Sethöllina eiga þar í höggi við leikmenn Selfoss. Grótta vann fyrsta leikinn, 40:31.

Leikir kvöldsins

Olísdeild karla, undanúrslit, annar leikur:
Lambhagahöllin: Fram – FH (1:0), kl. 19.30.

Umspil Olísdeildar karla, úrslit, annar leikur:
Sethöllin: Selfoss – Grótta (0:1), kl. 19.30.

Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2025

Umspil Olís karla 2025: leikjadagskrá og úrslit

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -