Leikið verður í Olísdeildum karla og kvenna í handknattleik í dag. Einnig verður ekki slegið slöku við í 2. deild auk þess sem kvennalið Vals og karlalið ÍBV standa í ströngu í 3. umferð Evrópubikarkeppninnar í dag og á morgun.
Leikir dagsins
Olísdeild kvenna:
KA-heimilið: KA/Þór – Stjarnan, kl. 14 – sýndur á KAtv.
Vestmannaeyjar: ÍBV – HK, kl. 14 – sýndur á ÍBVtv.
Sethöllin: Selfoss – Haukar, kl. 14 – sýndur á Stöð2sport.
Smelltu hér til þess að sjá stöðuna í Olísdeild kvenna.
Olísdeild karla:
KA-heimilið: KA – Haukar, kl. 16 – sýndur á KAtv.
Sethöllin: Selfoss – Fram, kl. 18 – sýndur á Stöð2sport.
Smelltu hér til þess að sjá stöðuna í Olísdeild karla.
2.deild karla:
Garður: Víðir – Afturelding U, kl. 13.
Smelltu hér til þess að sjá stöðuna í 2. deild karla.
Evrópubikarkeppni kvenna, 3. umferð, fyrri leikur:
Alicante: Valur – Club Balonmano Elche, kl. 11.
Leiknum verður streymt á eftirfarandi slóð:
https://www.apuntmedia.es/directe/directe-tv_136_1392524.html
Evrópubikarkeppni karla, 3. umferð, fyrri leikur:
Prag: ÍBV – Dukla Prag, kl. 13.