Fjórtánda umferð Olísdeildar kvenna hefst í kvöld með viðureign Fram og Selfoss í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal. Flautað verður til leiks klukkan 20.30. Fram er í öðru sæti deildarinnar með 20 stig en Selfoss er í fjórða sæti sjö stigum á eftir.
Keppni í Grill 66-deild karla fer af stað eftir um 6 vikna hlé. Efsta lið deildarinnar, Þór, fær ungt lið Fram2 í heimsókn í Höllina í höfuðstað Norðurlands klukkan 18. Framliðið hefur reynst mörgum andstæðinga sinna skeinuhætt á leiktíðinni og skemmst er minnast þess að forveri Fram2, þ.e. FramU, vann Grill 66-deildina á síðasta keppnistímabili.
Ekki verður heldur slegið slöku við leik í Grill 66-deild kvenna í kvöld. Fjölniskonur og Berserkir taka móti Val2 og Afturelding á heimavöllum sínum. Einnig mætast Hafnarfjarðarliðinu FH og Haukar2 í Kaplakrika.
Leikir kvöldsins
Olísdeild kvenna:
Lambhagahöllin: Fram – Selfoss, kl. 20.30
-leikurinn settur á kl. 18.30 á vef HSÍ í morgun en nú lítur út fyrir að leiktímanum hafi verið breytt.
Staðan í Olísdeildum.
Grill 66-deild karla:
Höllin Ak.: Þór – Fram2, kl. 18.
Staðan í Grill 66-deildum.
Grill 66-deild kvenna:
Fjölnishöllin: Fjölnir – Valur 2, kl. 19.30.
Kaplakriki: FH – Haukar 2, kl. 19.30.
Víkin: Berserkir – Afturelding, kl. 20.30.
- Allir leikir kvöld verða sendir út á Handboltapassanum.