Áttundu umferð Olísdeildar karla í handknattleik verður framhaldið í kvöld þegar Valur og Selfoss leiða saman hesta sína í Origohöllinni kl. 19.30.
Íslandsmeistarar Vals léku síðast í Olísdeildinni 21. október gegn ÍR og unnu með 10 marka mun, 35:25. Leik Vals í 7. umferð, við Gróttu, var slegið á frest til 19. desember vegna þess að viðureign Gróttu við FH í bikarkeppnini rakst á við deildarleikinn. Valur hefur frá 21. október leikið tvisvar sinnum í Evrópudeildinni með afar góðum árangri.
Selfoss hefur átt góðu gengi að fagna og var áður en flautað var til leiks í áttundu umferð í þriðja til fjórða sæti með níu stig eins og Afturelding. Selfossliðið hefur leikið fjóra leiki í röð án taps í Olísdeildinni, unnið þrjá og gert eitt jafntefli.
Olísdeild karla, 8. umferð:
Origohöllin: Valur – Selfoss, kl. 19.30 – sýndur á Stöð2sport.
Staðan í Olísdeild karla:
Valur | 7 | 6 | 0 | 1 | 225 – 187 | 12 |
Fram | 8 | 4 | 3 | 1 | 237 – 230 | 11 |
Afturelding | 8 | 5 | 1 | 2 | 232 – 213 | 11 |
FH | 8 | 4 | 2 | 2 | 228 – 228 | 10 |
Selfoss | 7 | 4 | 1 | 2 | 215 – 200 | 9 |
Stjarnan | 8 | 3 | 3 | 2 | 231 – 228 | 9 |
ÍBV | 7 | 3 | 2 | 2 | 242 – 206 | 8 |
KA | 8 | 2 | 2 | 4 | 225 – 237 | 6 |
Grótta | 6 | 2 | 1 | 3 | 168 – 164 | 5 |
Haukar | 7 | 2 | 1 | 4 | 196 – 197 | 5 |
ÍR | 8 | 2 | 0 | 6 | 220 – 278 | 4 |
Hörður | 8 | 0 | 0 | 8 | 231 – 282 | 0 |