Tveir síðustu leikir ársins í Olísdeild karla fara fram í kvöld þegar blásið verður til leiks í TM-höllinni í viðureign Stjörnunnar og FH annars vegar og til leiks ÍR og Gróttu hins vegar í Skógarseli klukkan 19.30. Þráðurinn verður tekinn upp í deildinni 31. janúar á næsta ári.
Stjarnan vann FH, 33:28, í fyrstu umferð Olísdeildarinnar í september þegar liðið mættust í Kaplakrika. Síðan hefur FH verið á miklum skriði í deildinni og ekki tapað í níu síðustu leikjum og tíu ef talinn er með leikur í bikarkeppninni.
Grótta vann öruggan sigur á ÍR, 31:20, í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi 8. september.
Olísdeild karla:
TM-höllin: Stjarnan – FH, kl. 19.30 – sýndur á Stöð2sport.
Skógarsel: ÍR – Grótta, kl. 19.30.
Staðan í Olísdeild karla.