- Auglýsing -
Einn leikur fer fram á Íslandsmóti fullorðinna í handknattleik í kvöld. Þór tekur á móti liði Selfoss í Íþróttahöllinni á Akureyri. Flautað verður til leiks klukkan 19. Um er að ræða síðustu viðureignina í fjórðu umferð deildarinnar.
Þór er í þriðja sæti deildarinnar með fjögur stig að loknum þremur leikjum. Víkingur og Fram2 hafa tveimur stigum meira.
Selfoss-liðið hefur einnig fjögur stig að loknum þremur leikjum.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.
- Auglýsing -