- Auglýsing -
Þráðurinn var tekinn upp í Olísdeild karla í gær með einum leik eftir að keppni hafði legið niðri frá 17. desember. Í kvöld verða tveir leikir á dagskrá. Þar á meðal verður toppslagur á milli Hauka og Stjörnunnar. Liðin eru í tveimur af fjórum efstu sætum deildarinnar og aðeins skilur tvö stig þau að. Haukar hafa 20 stig og Stjarnan 18 eftir 13 umferðir. Stjarnan vann fyrri viðureign liðanna 11. október á Ásvöllum með tveggja marka mun, 30:28.
Í Kaplakrika mætast liðin sem eru hvort á sínum enda stöðutöflunnar, FH og HK. Hafnarfjarðarliðið trónir á toppnum á sama tíma og HK vermir botnsætið 19 stigum á eftir FH-ingum. Fyrri viðureign liðanna sem fram fór í Kórnum fimmtudaginn 7. október lauk með fjögurra marka sigri FH, 29:25.
Áhorfendur eru velkomnir á leikina í kvöld.
Olísdeild karla:
Kaplakriki: FH – HK, kl. 19.30 – sýndur á FHtv.
TM-höllin: Stjarnan – Haukar, kl. kl. 19.30 – sýndur á Stöð2sport.
Stöðu og næstu leiki í Olísdeild karla má sjá hér.
- Auglýsing -