- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Danir þurftu ekki sitt sterkasta lið til þess að vinna Þjóðverja

- Auglýsing -

Þrátt fyrir að Nikolaj Jacobsen landsliðsþjálfari Dana væri talsvert frá því að stilla upp sínu sterkasta liði gegn Þjóðverjum í dag þá unnu Danir sanngjarnan sigur, 31:29, í síðari vináttuleik þjóðanna í Lanxess Arena í dag. Þetta var 11. sigur Danmerkur í röð gegn Þýskalandi í handknattleik karla. Á föstudaginn vann Danmörk með átta marka mun, 36:28, í fyrri viðureigninni. Þá stillti Jacobsen upp sinni sterkustu sveit og gerði út um leikinn í fyrri hálfleik.

Sjö öflugir leikmenn voru ekki í danska hópnum í dag; Mathias Gidsel, Mads Hoxer, Thomas Arnoldsen, Magnus Landin, Simon Hald, Magnus Saugstrup og Lukas Jørgensen. Nóg er til af öflugum dönskum handknattleiksmönnum um þessar mundir.


Viðureignin í dag var mun jafnari en sú fyrri. Danir voru lengst af með frumkvæðið í dag og voru m.a. marki yfir í hálfleik, 17:16. Skömmu fyrir leikslok var staðan jöfn, 28:28.

Juri Knorr skoraði átta mörk fyrir þýska landsliðið og var markahæstur. Simon Pytlick var atkvæðamestur í danska landsliðinu með sex mörk.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -