- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Davíð og Lárus láta af störfum hjá Gróttu

- Auglýsing -

Davíð Örn Hlöðversson þjálfari karlaliðs Gróttu og Lárus Gunnarsson aðstoðarþjálfari hafa ákveðið að láta af störfum eftir árs starf. Undir þeirra stjórn hafnaði Grótta í öðru sæti Grill 66-deildar karla með jafn mörg stig og Víkingur sem vann deildina. Grótta tapaði síðan fyrir Herði í undanúrslitum umspils Olísdeildar.

Leit að eftirmönnum Davíðs og Lárusar mun þegar vera hafin.


„Stjórn handknattleiksdeildar Gróttu færir Davíð Erni og Lárusi þakkir fyrir góð störf og óskar þeim velfarnaðar í hverju því sem þeir taka sér fyrir hendur. Allt þeirra starf hefur borið þess vitni að þeir eru miklir og sannir Gróttumenn,“ segir í tilkynningu Gróttu í morgun.

Davíð Örn og Lárus tóku við af Róberti Gunnarssyni fyrir ári eftir að Grótta féll úr Olísdeildinni vegna taps fyrir Selfossi í úrslitum umspils Olísdeildar. Davíð var áður hægri hönd Róberts við þjálfun Gróttuliðsins.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -