Íslenskir dómarar og eftirlitsmenn standa í ströngu í næstu viku þegar fyrri viðureignir átta liða úrslita Meistaradeildar Evrópu og Evrópudeildar karla fara fram.
Hlynur Leifsson verður eftirlitsmaður á viðureign MT Melsungen og FC Porto í átta liða úrslitum Evrópudeildar karla. Leikurinn verður háður í Kassel í Þýskalandi.
Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson dæma leik Flensburg-Handewitt og Hannover-Burgdorf í átta liða úrslitum Evrópudeildar karla sem fram í Flensburg miðvikudaginn 29. apríl.
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma leik Sporting Lissabon og Aalborg Håndbold í átta liða úrslitum Meistaradeildar karla miðvikudaginn 29. apríl.
Íslendingar eru ekki skráðir til starfa við dómgæslu eða eftirlit á leikjum síðari umferðar Evrópudeildar og Meistaradeildar karla í fyrstu viku maí.


