- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Donni skoraði fimm mörk – Skanderborg efst í riðlinum

- Auglýsing -

Skanderborg AGF, lið Kristjáns Arnar Kristjánssonar Donna, vann TTH Holstebro, 37: 30, í Holstebro í kvöld í 3. umferð annars af tveimur riðlum úrslitakeppninnar um danska meistaratitilinn í handknattleik. Stendur Skanderborg þar með afar vel að vígi að hálfnaðri keppni með sjö stig í efsta sæti riðilsins. TTH er í þriðja sæti af fjórum liðum með tvö stig. Að þremur umferðum til viðbótar loknum mæta tvö efstu lið riðilsins þeim tveimur liðum sem verða efst í hinum riðlinum í krossspili í undanúrslitum keppninnar.


Donni skoraði fimm mörk fyrir Skanderborg í leiknum í kvöld. Auk þess gaf hann tvær stoðsendingar og var einu sinni vikið af leikvelli.

Jóhannes Berg skoraði eitt mark í síðari hálfleik fyrir TTH sem Arnór Atlason þjálfar.

Mors-Thy er í öðru sæti á eftir Skanderborg. Mors-Thy vann Bjerringbro/Silkeborg, 34:30. Bjerringbro/Silkeborg rekur lestina í riðlinum án stiga.

Í hinum riðli keppninnar er Aalborg Håndbold efst með sex stig að loknum þremur umferðum. Fredericia er með fjögur stig, GOG þrjú stig og Skjern tvö.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -