- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dregið í forkeppni HM kvenna – Ísland í efri flokki

Á morgun kemur í ljós hver verður andstæðingur íslenska landsliðsins í 1. umferð umspils um sæti á HM 2023. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna verður í efri styrkleikaflokki þegar dregið verður á morgun í fyrstu umferð umspils um keppnisrétt á heimsmeistaramóti sem haldið verður í desember 2023 í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.


Landslið átján þjóða taka þátt í umspilinu sem leikið verður heima og að heiman í byrjun nóvember.


Í efri styrkleikaflokki verða: Ísland, Austurríki, Slóvakía, Tyrkland, Úkraínu, Færeyjar, Portúgal, Grikkland, Ítalía.


Í neðri styrkleikaflokki verða: Kósovó, Ísrael, Finnland, Lúxemborg, Aserbadsjan, Bosnía-Herzegóvína, Búlgaría, Bretland, Lettland.


Sigurliðin í umspilinu í nóvember komast á síðara stig undankeppni HM sem fram fer næsta vor þegar tíu neðstu lið EM kvenna verða dregin gegn sigurliðum forkeppninnar í nóvember. Einnig mæta Tékkar þá til leiks en þeir sitja yfir í fyrstu umferð forkeppninnar.


- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -