- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Dregið í riðla EM 17 og 19 ára landsliða kvenna – bæði mót í Podgorica

Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Í dag var dregið í riðla Evrópumóta 17 og 19 ára landsliða kvenna sem fram fara í sumar. Ísland vann sér keppnisrétt á báðum mótum með góðri frammistöðu á EM þessara aldursflokka fyrir tveimur árum. EM er haldið annað hvert ár hjá yngri landsliðum eins og hjá þeim eldri.


EM 19 ára landsliða kvenna fer fram í Podgorica í Svartfjallalandi 9. – 20. júlí. Riðlaskiptingin verður sem hér segir:

A-riðill : Ungverjaland, Tékkland, Norður Makedónía, Pólland.
B-riðill : Danmörk, Svartfjallaland, Ísland, Litáen.
C-riðill : Serbía, Svíþjóð, Sviss, Finnland.
D-riðill : Þýskaland, Rúmenía, Spánn, Færeyjar.
E-riðill : Frakkland, Noregur, Portúgal, Slóvenía.
F-riðill : Króatía, Holland, Austurríki, Tyrkland.


EM 17 ára landsliða kvenna fer einnig fram í Podgorica í Svartfjallalandi frá 30. júlí til 10. ágúst. Þetta verður í annað sinn í röð sem Svartfellingar halda EM 17 ára landsliða kvenna.

Riðlaskiptingin verður sem hér segir:
A-riðill: Danmörk, Svíþjóð, Spánn, Tyrkland.
B-riðill: Þýskaland, Portúgal, Norður Makedónía, Slóvakía.
C-riðill: Holland, Ísland, Sviss, Færeyjar.
D-riðill: Ungverjaland, Noregur, Serbía, Slóvenía.
E-riðill: Frakkland, Svartfjallaland, Tékkland, Litáen.
F-riðill: Króatía, Rúmenía, Austurríki, Pólland.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -