- Auglýsing -
Ethel Gyða Bjarnasen markvörður U19 ára landsliðs kvenna kveður HK í sumar því hún hefur ákveðið að ganga til liðs við Fram. Greint var frá því í dag að Ethel Gyða hafi skrifað undir tveggja ára samning við Fram.
Ethel Gyða er á átjánda ári. Hún er ein af efnilegri markvörðum landsins í kvennaflokki. Ethel Gyða var í U18 ára landsliðinu sem hafnaði í áttunda sæti á HM á síðasta sumri. Ethel Gyða verður væntanlega í U19 ára landsliðinu sem tekur þátt í EM í Rúmeníu í júlí.
Í vetur lék hún með meistaraflokki HK og einnig 3. flokki og varð m.a. bikarmeistari með 3. flokki HK í síðasta mánuði.
HK féll úr Olísdeild kvenna á dögunum og leikur í Grill 66-deildinni á næstu leiktíð.
- Lákúra nýkjörins formanns
- Tíu íslensk mörk í Kristjánssandi
- Andrea og samherjar í góðri stöðu eftir sigur í San Sebastián
- HK hélt öðru sæti og fær heimaleikjarétt – Víkingur og Afturelding líka í umspil
- Við erum svo sannarlega á lífi fyrir síðari leikinn
- Auglýsing -