- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efnilegur markvörður skrifar undir þriggja ára samning

Arnór Máni Daðason, markvörður Fram. Mynd/Fram
- Auglýsing -

Markvörðurinn ungi og efnilegi, Arnór Máni Daðason, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Handknattleiksdeild Fram. Arnór Máni er einn af efnilegri markmönnum landsins og hefur, þrátt fyrir ungan aldur, átt fast sæti í meistaraflokki Fram á liðnum árum og á tíðum sýnt vasklega frammistöðu.

Arnór Máni er uppalinn hjá Fram og á að baki farsælan feril með yngri flokkum félagsins. Þá hefur hann reglulega verið í landsliðshópum yngri flokka.

„Arnór Máni er öflugur leikmaður sem leggur sig mikið fram, er góður liðsfélagi og hefur tekið miklum framförum á undanförnum árum. Við erum stoltir af því að hafa hann áfram í sterku markmannsteymi félagsins,“ er haft eftir Einari Jónssyni þjálfara Fram í tilkynningu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -