„Mér líður frábærlega. Er alveg í skýjunum. Einn kollegi þinn sem ég var að tala við sagði mér að það væru 30 ár síðan við vorum í undanúrslitum. Þá var ég ekki einu sinni orðinn að hugmynd,“ sagði Þorsteinn Leó Gunnarsson stórskytta sem skaut portúgalska landsliðið niður í undanúrslitaleiknum á heimsmeistaramótinu í dag. Þorsteinn Leó skoraði 11 mörk í 32:28 sigri íslensku piltanna sem leika við Ungverja í undanúrslitum á laugardaginn.
Strákarnir eiga hrósið
„Strákarnir í liðinu eiga hrósið. Ég var bara að stökkva upp og skjóta. Þetta var allt frekar auðvelt fyrir mig vegna þess að strákarnir í liðinu unnu alla undirbúningsvinnuna. Þeir losuðu boltann til mín á réttum tíma,“ sagði Þorsteinn Leó spurður um eigin frammistöðu og vildi sem minnst gera úr henni.
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/06/SP7_4861-1024x683.jpg)
Þetta er stórt!
„Síðari hálfleikur var frábær, það gekk bara allt upp hjá okkur, vörn, markvarsla og sóknarleikur. Það var geggjað kemestrí í liðinu. Nú er þetta frá og röðin komin að næsta leik á laugardaginn. Undanúrslit. Það er stórt,“ sagði Þorsteinn Leó Gunnarsson stórkytta úr Mosfellsbæ þegar hann hitti handbolta.is í Max Schemling Halle eftir sigurinn á Portúgal.