Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik tilkynnir á mánudaginn hvaða leikmenn hann hefur valið til þess að taka þátt í tveimur vináttuleikjum við Afríkumeistara Egyptalands í Kaíró um miðjan næsta mánuð.
Búast má við að flestir þeirra leikmanna sem tóku þátt í vináttuleikjunum við Svía í síðasta mánuði verði í hópnum sem valinn verður til Egyptalandsfararinnar. Í viðtali við handbolta.is snemma í mars sagði Snorri að hann ætlaði sér að fara með sterkt lið til Egyptalands þótt reikna megi með að einhverjir fái frí frá landsleikjunum vegna anna hjá félagsliðum sínum sem verða í baráttu á nokkrum vígstöðvum á lokaspretti móta félagsliða í Evrópu.
Mætir með gott lið
„Ég ætla samt ekki að vera með lið sem mun skíttapa. Ég mun mæta með gott lið enda eru Egyptar með eitt af átta bestu landsliðum heims,“ sagði Snorri Steinn við handbolta.is 10. mars. „Áður en hópurinn verður valinn mun ég taka stöðuna á stórum hóp leikmanna vegna þess að ég mun alveg örugglega skoða vel og þreifa mig áfram með í viðureignunum við Egypta í maí,“ bætti Snorri Steinn við.
Fer ekki til Kaíró til þess að skíttapa
Í stað umspilsleikja
Leikir íslenska landsliðsins við Egypta í maí koma í stað umspilsleikja fyrir HM sem Ísland tekur ekki þátt í að þessu sinni. Fjórða sætið á EM í janúar tryggði Íslandi farseðil á heimsmeistaramótið. Egyptar eru einnig öruggir með HM-sæti eftir að hafa unnið Afríkumeistaratitilinn í tíunda sinn í janúar.
Egyptar endurgjalda heimsóknina með komu hingað til lands í janúar á næsta ári, í aðdraganda heimsmeistaramótsins.



