- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Einar Bragi og félagar halda lífi í einvíginu

- Auglýsing -

Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad náðu að halda lífi í undanúrslitaeinvígi sínu við Alingsås með naumum sigri á heimavelli, 25:24, í þriðju viðureign liðanna. Sigurinn var IFK Kristianstad lífsnauðsynlegur eftir að hafa tapað tveimur fyrstu leikjunum í rimmunni.

Einar Bragi skoraði eitt mark í leiknum í dag. Sænski landsliðsmaðurinn Axel Månsson var atkvæðamestur með átta mörk.


Næst mætast liðin í Alingsås á miðvikudaginn. Þá, eins og í dag, verður IFK að vinna til þess að fá oddaleik.

Malmö hefur tvo vinninga gegn engum hjá IFK Sävehof í hinni viðureign undanúrslita sænsku úrvalsdeildarinnar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -