- Auglýsing -
- Auglýsing -

Einar Pétur semur við HK

Einar Pétur Pétursson í undanúrslitaleik Coca Cola-bikarsins með Haukum í mars 2020. Hann hefur tekið þráðinn á ný með HK samkvæmt heimildum. Mynd/HSÍ

Hornamaðurinn Einar Pétur Pétursson hefur samið við Olísdeildarlið HK um að leika með því út yfirstandandi keppnistímabil. Þetta hefur handbolta.is samkvæmt heimildum og að Einar Pétur hafi skrifað undir samning í dag.
Einar Pétur, sem er vinstri hornamaður, lék með HK á síðasta keppnistímabili og skoraði 35 mörk í 18 leikjum í Grill66-deildinni.

Ekkert varð úr því að Einar Pétur tæki upp þráðinn með Kópvogsliðinu í sumar þegar undirbúningur fyrir keppni í Olísdeildinni hófst en HK vann Grill66-deildina í vor.


Nú er hinsvegar svo komið að þörf er fyrir krafta Einars Péturs í HK-liðinu, ekki síst vegna þess að hornamaðurinn og unglingalandsliðsmaðurinn Símon Michael Guðjónsson verður frá keppni fram í febrúar hið minnsta eftir að hafa farið úr axlarlið í síðasta mánuði eins og ítrekað hefur komið fram á handbolti.is.


Áður en Einar Pétur gekk til liðs við HK lék hann um árabil með Haukum.
HK er án stiga í Olísdeildinni eftir fimm leiki en virðist sífellt færast nær fyrsta sigrinum ef marka má gengi liðsins í síðustu leikjum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

- Auglýsing -