Elvar Örn Jónsson fór á kostum í kvöld þegar MT Melsungen vann Hannover-Burgdorf örugglega á heimavelli, 34:26, í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Selfyssingurinn skoraði sjö mörk og gaf sex stoðsendingar. Hann var spakur í vörninni og var ekki vikið af leikvelli ef marka má tölfræði leiksins á vef þýsku 1. deildarinnar.
Þetta var sjöundi sigur MT Melsungen í sjö fyrstu leikjunum í deildinni. Liðið er fyrir vikið í efsta sæti, tveimur stigum á undan Füchse Berlin sem á leik til góða gegn Eisenach á sunnudaginn.
Arnar Freyr Arnarsson skoraði eitt mark úr sínu eina skoti og varð tvisvar sinnum að bíta í það súra epli að vera tvisvar sinnum vikið af leikvelli.
Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf. Liðið er í fimmta sæti deildarinnar með átta stig.
Staðan á einni síðu
Nánar er hægt að kynna sér stöðuna í þýsku 1. deildinni og fleiri deildum Evrópu á sérstakri stöðusíðu sem sett hefur verið upp undir flipanum staða og leikir og nálgast má hér.