- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ekkert verður af kappleik í Eyjum á morgun

Ida Margrethe Hoberg Rasmussen á auðum sjó í leik gegn Val í vor. Mynd / Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -


Veður er þegar farið að setja strik í reikning leikjadagskrár Olísdeildar kvenna á morgun. Rétt í þessu tilkynnti mótanefnd HSÍ að viðureign ÍBV og KA/Þór sem til stóð að færi fram í Vestmannaeyjum á morgunm hafi verið frestað.


Ljóst er að ekki er fært né verður fært á milli lands og Eyja. Gerð verður önnur tilraun til þess að koma leiknum á dagskrá miðvikudaginn 22. mars. Vonir standa til að hægt verði að flauta til leiks klukkan 18 þennan ágæta miðvikudag í mars, tveimur dögum eftir vorjafndægur.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -