- Auglýsing -
Eftir því sem næst verður komist var tillögu HK um fjölgun liða úr átta í tíu í Olísdeild kvenna á næstu leiktíð vísað frá á 64. ársþingi Handknattleikssambands Íslands, HSÍ, sem fram fór í gær. Þar með er útlit fyrir að átta lið taki þátt í Olísdeild kvenna keppnistímabilið 2021/2022 eða eins og verið hefur frá leiktíðinni 2016/2017.
Eins og kom fram í gær þá samþykktu þingfulltrúar að fela stjórn HSÍ að skipa nefnd til að móta stefnu til framtíðar fyrir kvennahandknattleik á Íslandi.
- Auglýsing -