Elín Jóna Þorsteinsdóttir landsliðsmarkvörður heldur áfram að fara á kostum á milli stanganna í kappleikjum. Hún lokaði marki Ringköbing á löngum köflum í gær þegar lið hennar vann Skanderborg, 28:20, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Það kom því ekki neinum í opna skjöldu þegar tilkynnt var í leikslok að Elín Jóna hafi verið valin maður leiksins.
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/10/250843029_4691726847558759_2996807885214138082_n-473x1024.jpg)
Elín Jóna varði 12 skot, 43% markvarsla þeim 47 mínútum sem hún stóð í marki liðsins í leiknum. Kollegi hennar, Marit Huiberts fékk að standa vaktina á lokakaflanum eftir sýningu Elínar Jónu.
Ringköbing, sem er nýliði í dönsku úrvalsdeildinni, er komið upp í 11. sæti eftir sigurinn í gær en 14 lið eiga sæti í deildinni. Ringköbing hefur sex stig að loknum níu umferðum. Skanderborg er stigi á eftir og því var sigurinn í gær afar mikilvægur fyrir Ringköbing-liðið.
Steinunn Hansdóttir var í leikmannahópi Skanderborg en tókst ekki að skora hjá Elínu Jónu fremur en mörgum samherjanna.