Elín Klara Þorkelsdóttir er sænskur meistari í handknattleik kvenna með liði sínu IK Sävehof eftir sigur á meisturum síðasta árs, Skara HF, 29:28, í þriðja úrslitaleik liðanna í Partille í dag. Um sannkallaða maraþonviðureign var að ræða því ekki fékkst sigur á annan hvorn veginn fyrr en að loknum tveimur framlengingum. Elín Klara skoraði sigurmarkið er hún gerði 29. mark IK Sävehof á þremur og hálfri mínútu fyrir leikslok, 29:26. Skara-liðið skoraði tvö síðustu mörkin en komst ekki nær.
Fetar Elín Klara þar með í fótspor Birnu Berg Haraldsdóttur sem varð sænskur meistari með IK Sävehof 2014 og 2015.
Elín Klara var markahæst hjá IF Sävehof með átta mörk, fimm þeirra úr vítaköstum.
Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Skara HF og gaf eina stoðsendingu. Þetta var síðasti leikur hennar fyrir félagið en Lena Margrét flytur heim í sumar og gengur til liðs við Fram.
Átjándi meistaratitill félagsins
Þetta var átjándi meistaratitill IK Sävehof í kvennaflokki. Síðast varð lið félagsins meistari fyrir tveimur árum. Auk þess að vinna meistaratitilinn þá varð IK Sävehof einnig deildarmeistari í vor.
IK Sävehof vann þrjár viðureignir í úrslitaeinvíginu við Skara HF og tapaði ekki einum leik þótt mjóu hafi munað í dag en Skara var marki yfir skömmu fyrir lok 60 mínútna leiktíma.
Elín Klara gekk til liðs við IK Sävehof fyrir keppnistímabilið. Hún hefur átt frábært keppnistímabil og var m.a. valin besti leikmaður úrvalsdeildarinnar á dögunum.









