- Auglýsing -
Sigurganga lærisveina Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach í þýsku 1. deildinni í handknattleik hélt áfram í kvöld þegar liðið vann Leipzig, 37:31, í Leipzig. Heimaliðsins bíður hins vegar áframhaldandi lífróður fyrir áframhaldandi veru í deildinni. Liðið rekur lestina af 18 liðum. Gummersbach er í góðum málum í fjórða sæti.
Blær Hinriksson skoraði fimm mörk fyrir Leipzig-liðið og var markahæstur á eftir þriðja manni. Blær gaf einnig þrjár stoðsendingar.
Elliði Snær Viðarsson skoraði fjögur mörk fyrir Gummersbach og Teitur Örn Einarsson þrjú mörk. Ludvig Hallbäck var markahæstur með átta mörk.
Staðan í þýsku 1. deildinni:
Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -



