- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Elvar öflugur í Ringsted Arena – landar hans eru á sjúkralista

- Auglýsing -

Elvar Ásgeirsson fór að vanda fyrir danska liðinu Ribe-Esbjerg í kvöld þegar það lagði TMS Ringsted, 35:28, í Ringsted Arena á Sjálandi í þriðju umferð af fimm í umspili dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Elvar skoraði sex mörk og var markahæstur, geigaði aðeins á einu skoti, og gaf í þokkabót fimm stoðsendingar.

Fimm leikmenn TMS Ringsted tóku ekki þátt í leiknum vegna meiðsla, þar á meðal Guðmundur Bragi Ástþórsson og Ísak Gústafsson. Það var svo sannarlega skarð fyrir skildi.


Eftir þrjár fyrstu umferðir umspilsins er víst að hvorki Ribe-Esbjerg né TMS Ringsted eiga lengur á hættu að hafna í neðsta sæti fimm liða umspilsins. Neðsta liðið mætir sigurliði umspils næstefstu deildar í einvígi um sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Annaðhvort Sønderjyske eða HØJ hlýtur þann vafasama heiður að verða fulltrúi úrvalsdeildarinnar í þeim leikjum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -