Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður í handknattleik, fór ekki í rútu með félögum sínum í íslenska landsliðinu frá Kristianstad til Gautaborgar í morgun eftir því sem mbl.is segir frá. Hann var veikur í gær og fyrrinótt og lék þar af leiðandi ekki með gegn Suður Kóreu.
Til að draga úr hugsanlegri smithættu var ákveðið að Elvar Örn yrði í slagtogi með starfsmönnum HSÍ sem ferðuðust með lest frá Kristianstad og komu til Gautaborgar í hádeginu.
Mbl.is hefur eftir Elvari Erni að hann sé óðum að sækja í sig veðrið af veikindunum en hann hafi verið talsvert veikur aðfaranótt sunnudagsins og á sunnudaginn. Hver veit nema að Elvar Örn verður klár í slaginn þegar íslenska landsliðið mætir landsliði Grænhöfðaeyja síðdegis á morgun í Scandinavium íþróttahöllinni í Gautaborg.
Milliriðill 2 (Gautaborg) 18.janúar: Portúgal – Brasilía, kl. 14.30. Grænhöfðaeyjar – Ísland, kl. 17. Svíþjóð – Ungverjaland, kl. 19.30. 20.janúar: Brasilía – Ungverjaland, kl. 14.30. Grænhöfðaeyjar – Portúgal, kl. 17. Ísland – Svíþjóð, kl. 19.30. 22.janúar: Grænhöfðaeyjar – Ungverjaland, kl. 14.30. Brasilía – Ísland, kl. 17. Svíþjóð – Portúgal, kl. 19.30.