- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Elvar valinn bestur hjá Ribe-Esbjerg

- Auglýsing -

Elvar Ásgeirsson var valinn besti leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Ribe-Esbjerg á leiktíðinni sem er að renna sitt skeið á enda. Hann tók við viðurkenningu í dag fyrir síðasta leik tímabilsins sem vildi svo til að var á heimavelli gegn Nordsjælland.


Elvar hefur skorað 114 mörk á leiktíðinni og er í 24. sæti yfir markahæstu leikmenn dönsku úrvalsdeildarinnar. Að auki hefur hann gefið 88 stoðsendingar og er í 14. sæti þess lista í deildinni. Þar að auki hefur Elvar verið harður í horn að taka í varnarleik Ribe-Esbjerg. Fyrir vikið hefur honum verið sjö sinnum vikið af leikvelli, gulu spjöldin eru fjögur og þau rauðu tvö.


Þegar þetta er ritað er hálfleikur í viðureign Ribe-Esbjerg og Nordsjælland. Staðan er 20:15 fyrir Ribe-Esbjerg. Hefur Elvar þegar skorað þrjú mörk og gefið eina stoðsendingu.

Elvar gekk til liðs við Ribe-Esbjerg 2022. Fyrir ári framlengdi hann samning sinn við félagið til 2028.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -