- Auglýsing -
- Auglýsing -

EMU17: Milliriðlar, leikir, úrslit, lokastaðan

Íslenska landsliðið, U17 ára kvenna, á Evrópumótinu í Svartfjallalandi í ágúst. Flestar ef ekki allar stúlkurnar í liðinu eru í æfingahópi 18 ára landsliðsins. Mynd/HF Montenegro/Stefan Ivanovic
- Auglýsing -

Milliriðlakeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik, skipað leikmönnum 17 ára og yngri, stendur yfir þriðjudaginn 8. og miðvikudaginn 9. ágúst. Leiknar verða tvær umferðir í fjórum riðlum. Tveir riðlanna eru með liðum sem kljást um átta efstu sæti og hinsvegar aðrir tveir þar sem eigast við lið sem keppast um sætin frá níu og upp í sextán.

HM og EM sæti í boði

Tólf efstu liðin tryggja sér keppnisrétt á HM 18 ára sem fram fer eftir ár og 14 efstu liðin vinna inn keppnisrétt á næsta Evrópumót þessa árgangs sem verður það fyrsta með 24 keppnisliðum. Þess vegna er eftir nokkru að slægjast fyrir liðin neðri hópnum, frá níu til sextán þar sem íslenska landsliðið er á meðal.

Leiktímar hér að neðan eru miðaðir við klukkuna á Íslandi.

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá milliriðla.

Milliriðlar – sæti 9 til 16

Riðill 3:
Svíþjóð – Tékkland 27:30 (14:16).
Sviss – Ísland 25:21 (12:11).
Ísland – Svíþjóð 23:34 (14:15).
Tékkland – Sviss 31:27 (15:12).
Lokastaðan:

Tékkland330089:766
Svíþjóð320192:834
Sviss310282:832
Ísland300366:870

Riðill 4:
Noregur – Norður Makedónía 32:21 (15:11).
Rúmenía – Portúgal 31:24 (11:9).
Portúgal – Norður Makedónía 36:13 (14:8).
Noregur – Rúmenía 27:33 (13:15).
Lokastaðan:

Rúmenía3300104:786
Noregur320190:814
Portúgal310287:752
N-Makedónía300361:1080

Milliriðlar – sæti 1 til 8

Riðill 1:
Króatía – Svartfjallaland 27:25 (16:13).
Serbía – Þýskaland 18:34 (12:17).
Serbía – Svartfjallaland 21:19 (8:9).
Þýskaland – Króatía, 9. ágúst 27:22 (16:13).
Lokastaðan:

Þýskaland321084:635
Króatía320179:724
Serbía310259:832
Svartfj.land301267:711

Riðill 2:
Ungverjaland – Danmörk 24:24 (10:9).
Frakkland – Holland 32:18 (17:8).
Holland – Ungverjaland 22:34 (9:17).
Danmörk – Frakkland 25:20 (8:10).
Lokastaðan:

Danmörk321075:655
Frakkland320185:714
Ungv.land311186:793
Holland300361:920
  • Krossspil verður 11. ágúst. Leikið verður um sæti fimm til sextán 12. ágúst.
  • Undanúrslitaleikir fara fram 11. ágúst. Leikir um fjögur efstu sætin verða 13. ágúst.
  • Handbolti.is fylgist með öllum leikjum Íslands í textalýsingu. Einnig verður hægt að horfa leikina í streymi á ehftv.com. Handbolti.is hefur ekki leyfi til þess að tengjast streyminu.

EMU17: Dagskrá, úrslit og staðan, riðlakeppni

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -