- Auglýsing -
- Auglýsing -

EMU18: Slagur frændþjóða í vændum

Óli Mittún hefur leikið við hvern sinn fingur með færeyska landsliðinu á EM. Hér veltir hann fyrir sér næstu leikjum í stöðunni í leiknum við Svartfellinga í kvöld. Mynd/EHF
- Auglýsing -

Íslenska landsliðið í handknattleik, skipað leikmönnum 18 ára og yngri mætir frændum sínum, Færeyingum, í leik um 9. sætið á Evrópumeistaramótinu í Podgorica í Svartfjallalandi á morgun. Flautað verður til leiks klukkan 15.30 að íslenskum tíma. Þetta verður í fyrsta sinn sem Íslendingar og Færeyingar mætast í kappleik á stórmóti í handknattleik.


Færeyingar unnu öruggan sigur á Svartfellingum, 30:24, í síðari leik krosspilsins um níunda til tólfta sæti mótsins í kvöld. Áður hafði íslenska liðið unnið Slóvena með eins marks mun eftir vítakeppni, 30:29.


Færeyska liðið var með tögl og hagldir í leiknum frá upphafi viðureignarinna í kvöld. Svartfellingar náðu áhlaupi upp úr miðjum síðari hálfleik en eftir að færeyski markvörðurinn varði í vítakast í stöðunni 25:22 þegar sjö mínútur voru til leiksloka misstu Svartfellingar móðinn, að því er virtist.


Að vanda héldu Óla Mittún engin bönd í leiknum. Hann skoraði 12 mörk í 15 skotum fyrir færeyska liðið og átti margar stoðsendingar. Mittún hefur skorað 69 mörk í sex leikjum í mótinu og lang markahæstur.

Svíþjóð og Spánn í úrslitum

Svíar leika til úrslita á Evrópumótinu. Þeir unnu Ungverja með þriggja marka mun í undanúrslitum í dag, 33:30. Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson dæmdu leikinn og fórst það vel úr hendi. Var þetta þeirra fimmti leikur sem þeir dæma á mótinu.

Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson fyrir undanúrslitaleikinn í dag. Mynd/EHF


Spánverjar mæta Svíum í úrslitaleiknum á sunnudaginn. Spænska landsliðið vann það þýska, 32:29, í kvöld.


Dannir unnu Portúgala í hörku leik, 33:32, og mæta Króötum í leiknum um 5. sætið á sunnudaginn. Króatar höfðu betur gegn Norðmönnum, 29:26. Noregur leikur við Portúgal um 7. sæti, einnig á sunnudaginn.


Serbía og Frakkland leika um 13. sætið á morgun og Pólland og Ítalía eigast við um 15. sætið. Serbar lögðu Pólverja í dag, 33:30. Frakkar, sem hafa valdið miklum vonbrigðum á mótinu með frammistöðu sinni, unnu Ítali með 12 marka mun, 39:27.


- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -