Eftir 11 sigurleiki í röð beið Gummersbach lægri hlut í kvöld í heimsókn til Füchse Berlin, 28:26, í hörkuleik í Max Schmeling Halle í Berlínarborg. Berlínarliðið komst þar með upp í annað sæti deildarinnar með 36 stig þegar fimm umferðir eru eftir. Gummersbach er þremur stigum á eftir í fjórða sæti.
Elliði Snær Viðarsson skoraði fjögur mörk fyrir Gummersbach en Teitur Örn Einarsson skoraði ekki mark að þessu sinni. Hollendingurinn Kay Smits var markahæstur lærisveina Guðjóns Vals Sigurðssonar með fimm mörk.
Mathias Gidsel var markahæstur hjá nýkrýndum bikarmeisturum með 11 mörk.
Dejan Milosavljev átti stórleik í marki Füchse Berlin með 19 skot, 43%. Þrátt fyrir prýðilega frammistöðu Dominik Kuzmanović í marki Gummersbach stóð hann Serbanum ekki á sporði í marki Berlínarliðsins.
Ýmir Örn hafði betur gegn Hauki
Ýmir Örn Gíslason fór fyrir sínum mönnum í Göppingen er þeir lögðu Rhein-Neckar Löwen, 32: 30, á heimavelli. Ýmir Örn skoraði eitt mark fyrir Göppingen og var einu sinni vikið af leikvelli. Hornamaðurinn Marcel Schiller skoraði 10 mörk fyrir Göppingen.
Haukur Þrastarson lék á als oddi hjá Rhein-Neckar Löwen og skoraði 11 mörk, fjögur þeirra úr vítaköstum. Hann gaf auk þess átta stoðsendingar.
Staðan í þýsku 1. deildinni:


