Íslensku landsliðsmennirnir Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson voru að vanda aðsópsmiklir í kvöld þegar lið þeirra, Kolstad, vann sinn 12. leik í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Kolstad lagði liðsmenn Bækkelaget, 31:23, á heimavelli eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 14:10.
Janus Daði skoraði tvö mörk og gaf átta stoðsendingar. Sigvaldi Björn skoraði fjögur mörk í fimm skotum í Kolstad Arena í kvöld.
Kolstad hefur yfirburði í norsku úrvalsdeildinni um þessar mundir og er fimm stigum á undan Drammen sem hefur auk þess leikið einum leik fleira. Drammen gerði í kvöld jafntefli við Fjellhammer á heimavelli, 28:28.
Hinn hálf íslenski Viktor Petersen Norberg skoraði fimm mörk fyrir Drammen og átti fimm stoðsendingar. Óskar Ólafsson skoraði eitt mark og átti eina stoðsendingu