„Við erum orðnar mjög spenntar,“ segir Elísa Elíasdóttir leikmaður Vals en hún og stöllur í Íslandsmeistaraliðinu eru komnar út til Porriño á Spáni þar sem þeirra bíður fyrri úrslitaleikurinn í Evrópubikarkeppninni í handknattleik á laugardaginn gegn BM Porriño. Aldrei fyrr hefur íslenskt kvennalið í handknattleik leikið til úrslita á Evrópumóti félagsliða og því verður leikurinn sögulegur, ekki aðeins fyrir Val heldur einnig íslenskan handknattleik.
Elísa segir drauminn að ná einhverntímann svona langt í Evrópukeppni hafa verið fjarlægan draum. „Þegar við unnum spænska liðið Málaga fyrr í keppninni hugsaði maður að kannski gætum við bara unnið alla andstæðinga og komist í úrslit. Nú hefur það gerst. Það er nánast ótrúlegt að við séum komnar svona langt,“ segir Elísa og bætir við að þátttakan í Evrópukeppninni og góður árangur hafi gert mikið fyrir hópinn.
„Þetta hefur styrkt okkur mikið sem lið og hefur verið frábært tækifæri fyrir okkur,“ segir Elísa sem er bjartsýn á góð úrslit í Porriño á laugardaginn.
Lengra viðtal við Elísu er í myndskeiði hér fyrir ofan.
Fyrri viðureign BM Porriño og Vals hefst klukkan 15 á laugardaginn. Útsending verður á RÚV frá leiknum.
Síðari leikurinn fer fram á heimavelli Vals laugardaginn 17. maí einnig klukkan 15.
Evrópubikarkeppni kvenna – fréttasíða.