- Auglýsing -
Eyjapeyinn Egill Oddgeir Stefánsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Gróttu. Egill er örvhentur og fór mikinn í Grill 66-deildinni í vetur og skoraði m.a. 88 mörk með HBH (Handknattleiksbandalag Heimaeyjar). Hann lék einnig með ÍBV í Olísdeildinni.
„Egill mun smellpassa í Gróttuliðið og allt sem við stöndum fyrir. Hann er góður beggja megin vallarins og hlakka ég mikið til að vinna með honum,“ segir Andri Sigfússon, nýráðinn þjálfari karlaliðs Gróttu, í tilkynningu félagsins í kvöld.
- Auglýsing -


