- Auglýsing -
Eyþór Lárusson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokksliðs Selfoss í handknattleik kvenna en liðið vann sér í vor sæti í Olísdeildinni eftir fjögurra ára veru í Grill66-deildinni.
Eyþór er Selfyssingur í húð og hár og lék með meistaraflokki karla frá 2007-2013 og hefur verið þjálfari yngri flokka síðustu 15 ár. Hann er því öllum hnútum kunnugur hjá deildinni þótt hann sé nýgræðingur í þjálfun liðs í Olísdeildunum.
Eyþór tekur við stjórnartaumunum af Svavari Vignissyni sem hætti þjálfun kvennaliðs Selfoss eftir nýliðið tímabil vegna anna í sínu aðalstarfi. Í tilkynningu handknattleiksdeildar Selfossar vegna ráðningar Eyþórs er Svavari þökkuð góð störf fyrir deildina.
„Deildin er gríðarlega ánægð með að geta ráðið heimamann í starfið og bindur miklar vonir við Eyþór, sem er ungur og metnaðarfullur þjálfari. Það er mjög spennandi vetur í vændum hjá meistaraflokki kvenna,“ segir einnig í tilkynningu handknattleiksdeildar Selfoss.
Eftirtaldir þjálfa liðin í Olísdeild kvenna leiktíðina ''22/23: Fram: Stefán Arnarson. Valur: Ágúst Þór Jóhannsson. KA/Þór: Andri Snær Stefánsson. ÍBV: Sigurður Bragason. Stjarnan: Hrannar Guðmundsson. Haukar: Ragnar Hermannsson. HK: Samúel Ívar Árnason. Selfoss: Eyþór Lárusson.
- Auglýsing -