Færeyska kvennalandsliðið í handknattleik, skipað leikmönnum 19 ára og yngri, leikur um þriðja sætið í B-deild Evrópumóts kvenna í handknattleik í dag í Skopje í Norður Makedóníu. Íslenska landsliðið mætir liði heimamanna í viðureign um fimmta sætið á sama móti klukkan 11. Leikurinn verður sýndur á ehftv.com á netinu án endurgjalds.
Lið Færeyja og Norður Makedóníu voru saman í riðli fyrr í keppninni. Jafntefli varð í leik þeirra, 24:24.
Eftir fjóra leiki án taps mátti færeyska liðið sætta sig við tap fyrir pólska liðinu í undanúrslitum í gærkvöld, 24:21. Jafnt var í hálfleik, 10:10. Pólska liðið skoraði fimm mörk í röð þegar á leið síðari hálfleiks og lagði þar með grunn að sigrinum.
Pólland mætir Hollandi í úrslitum en lið síðarnefndu þjóðarinnar vann Hvít-Rússa í hinni viðureign undanúrslitanna, 25:22, eftir vítakeppni. Jafnt var að loknum venjulegum leiktíma og gripið var til vítakeppni þar sem allt gekk á afturlöppunum hjá Hvít-Rússum. Hollenska liðið skoraði úr þremur fyrstu vítaköstum sínum en Hvít-Rússum brást bogalistin í þrígang.
Færeyingar og Hvít-Rússar leika um bronsverðlaun.
Hollendingar og Pólverjar komast áfram í umspilsleiki sem fram fara í nóvember en þá verður leikið um keppnisrétt á HM U20 ára landsliða sem stendur til að fari fram eftir ár í Slóveníu.
Þess má geta til upprifjunar að íslenska landsliðið gerði jafntefli við pólska landsliðið á mótinu og var hársbreidd frá sigri. Þá tapaði Ísland fyrir Hvít-Rússum með einu einu marki eftir að hafa verið með yfirburði í fyrri hálfleik.
- Uppgjör á Hlíðarenda eftir skiptan hlut í Porriño
- Vil sjá einbeitt lið og troðfulla höll
- Taka til varna vegna bannsins langa
- Þjálfari BM Porriño segir hraðann vera lykil að sigri
- Baldur Fritz var við æfingar hjá Magdeburg